Ásdis og Örvar
Dagsetning
22. mars 2010
21.05.2008 20:18:10 / Ásdís og Örvar

HALLÓ

góðan daginn.....JÁ ég er ÚTSKRIFUÐ. Takk fyrir pent. Loksins búin með þetta nám. En sveinsprófið er eftir og vonandi á það eftir að ganga bara mjög vel!
Foreldrar mínir og systur sem búa fyrir austan komu í bæinn og það var svo grillað í garðabænum hjá systir mömmu eftir útskriftina, mjög gott.
Ég fékk gull hring frá mömmu og pabba og handklæði sem búið var að sauma í rauða húfu og dagsetninguna á útskriftinni. Frá systrum mínum og þeirra mökum og krökkum og ömmu minni fékk D&G úr. ÓGEÐSLEGA FLOTT!!! ;) Fékk líka frá systir mömmu og hennar liði 2 casa glös há, geggjað flott svo að mín er bara sátt! 8)

En já semsagt að þá eru bara allir að vinna á heimilinu, Örvar í sinni vinnu, ég í minni á stofunni, aldís að vinna á sóltúni og hössi sinni vinnu! Geggjað stuð!   Mig er farið að langa mjög mikið til að kíkja austur, vona að það fara að koma að því, gefst bara svo lítill tími!!! :s   En svo er það BARCELONA 20 júní....og guð hvað mig hlakkar til, það er minna en mánuður, HALLÓ.... En já þá verður verslað, ekki spurning! :haha:
Það verðu svo ættarmót í júli, sömu helgi og franskir dagar, það verður nú vonandi gaman þá á þeim bænum, þetta verður jú í breiðdalnum í seli!!! stuð....

En já í sambandi við þessa síðu að þá bara veit ég ekki hvort ég eigi eftir að blogga eitthvað meira.....nenni þessu ekki!  Þannig að sennilega að þá er þetta mitt síðasta blogg, nema að ég lendi í einhverju blogg skapi eftir barcelona, kemur í ljós!
Þannig að ég kveð því með þessu bloggi, kanski nenni ég blogga ef einhverjir kvitta, kemur í ljós.
Svo hafið það sem allra best í sumar og skemmtið ykkur ógó vel!! :haha:
En ok bæ sjáumst vonandi í sumar elskurnar!!! ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 13:13:41 / Ásdís og Örvar

24 APRÍL

Gleðilegt sumar allir og takk fyrir veturinn!!!

Ég var að dimmitera í gær. mættum upp í skóla kl 9 og hasarinn byrjaði svo kl half 10!!! Við vorum kötturinn með höttinn..:d..svaka stuð og margir stórskemmtilegir þegar líða tók á daginn!!!!  Fórum í keilu þar sem snilldar taktar litu dagsins ljós! ;)Við vorum semsagt að í allan gærdag og svo um kvöldið fórum við út að borða með kennrunum okkar sem eru búnir að kenna okkur lengst. Við fórum á hereford og maturinn þar var bara mjög góður!!! Býst við því að þangað verður farið þegar ég útskrifast, sem er 16 mai!!!! 8)
Já dagurinn í gær var svakalega góður og allir skemmtu sér rosa vel og allir voru ánægðir!!!! LOKSINS AÐ VERÐA BÚIÐ!!!

En hef bara annars ekkert að segja, er orðin voða löt að skrifa inn hérna! Örvar er bara alltaf á hjólinu sínu, enda skiljanlegt því þetta er sjúklega gaman!!! :haha:
Prófin eru að byrja hjá okkur báðum. Fyrsta mitt er á þriðjudaginn næsta á miðvikudaginn og svo ekki fyrr en 5 og 6 mai. Sem er bara fínt!!!!
En nenni ekki að skrifa meira! býst ekki við að ég skrifa eitthvað á næstunni!!!

EN ANNARS HAFIÐ ÞAÐ BARA ROSA GOTT Í DAG OG VONA AÐ ÞIÐ NJÓTIÐ SUMARSINS!!!!! 8)



» 3 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 20:32:18 / Ásdís og Örvar

OK

Já ég veit.....þarf að fara að blogg....ég bara nenni því aldrei...en það kemur vonandi fljótt áhuginn svo ég geti nú sagt fréttir!!!!
En látið ykkur líða vel..........

kv. Ásdís

p.s. Aldís og hössi, til lukku með daginn!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 19:51:54 / Ásdís og Örvar

hæmm


Dagurinn í dag var bara fínn. Mætti í skólan voða fersk eða þannig. Fór í ræktina í hádeginu sem var mjög gott, mer finnst voða gott að fara í hadeginu að púla, ég bara nenni því þá og líka á morgnanna, hef bara ekki orku í það á kvöldin!  En mætti svo í vinnuna hálf 3 og gerði tvo hausa fína!! 8)
Örvar er í ræktinni núna með Friðgeir voða duglegir.
Ég er komin með hor sem mér finnst bara engan vegin gaman. Hata það. Örvar hefur bara smitað mig, hann er búin að vera með þetta í ser í síðustu viku! :s
En vá ég hef ekkert skemmtilegt að segja. Ætla að fara horfa á kastljosi með Benidiktu sem er að leita að pabba sínum og svo one tree hill.
ok bæ...........:d

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 19:56:15 / Ásdís og Örvar

Skólahreysti

Halló, Það er allt gott að frétta.
Örvar er í ræktinni akkúrat núna og ég er að fara horfa á skólahreysti. Hún Bryndís mín litla verður í sjónvarpinu og hún er að koma suður 17 apríl til að keppa í laugardalshöllinni. Dugleg stelpa hún.
Helgin var fín. Nokkuð sátt með úrslitin í júrovision, þau verða bara flott úti. Fórum á nasa en ekki örvar en hann náði samt í okkur, krútt.
Mamma og pabbi verða svo í bænum núna. Mamma kemur á morgun og pabbi held ég lika og fara svo á sunnudaginn.
En ok hef ekkert að segja hafið það bara gott!!! love yha all.....

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 16:53:37 / Ásdís og Örvar

Halló allir.
Helgina var alveg æði. Við fórum í bústaðin á föstudeginum að loknum vinnudegi hjá mér, versluðum í bónus og vorum komin í bústaðinn rétt um hálf níu. Það var geggjað gott að komast í sveitina og slaka á og við gerðum bara ekki neitt. ;) Grilluðum góðan mat. Hamborgara í hadeginum og svin í kvöldmatinn á laugardeginum.
Örvar elskan átti svo að sjálfsögðu afmæli á laugardeginum þann 16 feb og varð 24 ára og ég vona að hann hafi verið honum góður. Man utd unnu allaveg stórsigur gegn arsenal. Mega gott! 8)
Það var mikið legið í heita pottinum. Hann fór allavega ekki til spillis!:haha:
Komum svo bara heima um 3  á sunnudaginn og svona líka endurnærð. ;)
En hef nú ekki mikið meira að segja, ákvað nú bara að kasta inn nokkrum orðum. Þau verða kanski fleiri næst.

Hafið það gott og verið þið blessuð!

p.s. Munið að kvitta!!!!!!! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 20:23:59 / Ásdís og Örvar

8 feb

Hæ..Það er ógeðslegt veður úti! :$

Svo það er bara kósý stund í Álftamýrinni. Bíómynd og nammi!! Og líka nóg af því!! ;)

En Sumarbústaður næstu helgi og Örvar elskan verður 24 ára. Hlakka klikkað til! :haha:

Hafið það gott elskurnar. Farin að horfa á tv!


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 00:57:53 / Ásdís og Örvar

HALLÓ.....

Hvernig væri nú að kvitta fyrir komuna????

 

Svo er enginn búin að tjá sig um greinina sem örvar setti hérna inn að neðan um Steina bróður sinn......Svolítið fyndnar staðreyndir.:haha:

Koma svo og Taka sig á!!!!;)

 

KVITTIÐ!!!!!!8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 23:10:15 / Ásdís og Örvar

drhilmar.bloggar.is hvet alla til aað skoða það brot af snilld hans þetta er um Steina bróður

Steinn Friðriksson

21. nóvember 2007 klukkan 21:45
Árið 1973 fæddist drengur á austurlandi sem fékk nafnið Steinn. 
Faðir hans Friðrikþótti mjög skeleggur í sveitinni og var sagt að hann væri mælskastur allra og einni þótti einkar lunkinn við að keyra í snjó. 

Friðrik átti það alloft til að halda tölu yfir stráknum þegar hann var að smjatta kókapöffsið sitt um það hvursu mikilvægt það væri að fylgja lögunum í landinu og einnig átti hann það til að þruma yfir honum hvursu miklir aumingar byggju fyrir sunnan og að þaðan væri ekkert gott að sækja.

Fortölur þess gamla höfðu eðlilega mikil áhrif á hinn óharðnaða dreng og fór boðskapurinn rétta leið ásamt kókapöffsinu enda var mælska þess gamla óvenju mikil.

Það má þá svo sannarlega segja að hún hafi verið tregablandin kveðjustundin þegar hinn ungi Steini hélt suður til að nema lögreglufræðin en sá gamli varð að kyngja þessu því ekki var hægt unnt að læra þessa grein hér fyrir austan.

Lögregluskólann tók Steini létt í vinstri nösina enda hafði faðir eins og áður sagði verið duglegur að fræða hann og bróður hans örvar um þessi fræði þannig að Steini nýtti dauðar stundir og hóf að nema rafvirkjun.

Hann hafði áhuga á rafmagni eins og sjá má hér á vísindavefnum  http://www.visindavefur.hi.is/svar.php?id=4481 en það var bara þannig að áhuginn var ekki nóg enda lenti hann´í því í fyrsta sinn á ævinni að þurfa hugsa sjálfstætt.  Rafvirkjanámið varð því stutt en iðnskólinn sá þó aumur á honum og ákváðu að útskrifa hann sem vélvirkja.

Það var mikill gleðidagur þegar lögregluþjóninn og vélvirkinn kom aftur austur og hóf hann strax störf hjá lögreglunni á Fáskrúðsfirði og byrjaði hann að handtaka menn hægri vinstri og sektaði grimmt og þurfti lögregluembættið að biðja um auka fjárlög til að mæta auknum pappírs og pennakostnaði hjá Steina.

Því miður fyrir samfélagið hér fékkst ekki fjármagn til fjármagna sektargleði Steina þannig að hann gekk úr lögreglunni með fússi og fór beint á fund til Dave Ballum sem veitti honum vinnu sem vélvirki og má segja að þar hafi hann harðnað enn meira og kenndi Ballum honum margt, til að mynda að vera orðljótur, hrokafullur, sjálfumglaður, montinn, hreinskilinn og herðarbreiður.

Að lokum slettist upp á vinskapinn hjá vegna þess að Ballum kallði Djúpavog jafnan "djúpifokkur" og það sárnaði honum Steina þar sem þar hafði hann aðsetur ásamt spúsu sinni og einhverjum fyrrverandi kærustum.

Steina tókst því næst með mælsku sinni að ráða sig hjá VHE og heldur hann ennþá því starfi.

Að lokum koma hér nokkrir punktar um kauða

-hann er ekkert að stressa sig á því á að láta vita þegar hann fer í bæjarferð.
-hann á börn með tveimur konum
-með mælsku sinni vann hann forræðismál
-bróðir hans heldur þvi fram að hann Steini sé samkynhneigður
-hann er í aðdáðendaklúbbi John Arne Riise
-hann langar að grafa skurði í gegnum alla jarðskorpuna
-hann fær ekki alltaf bíl eins og samdi um
-Hann býr á djúpavogi
-hann skoraði sjálfsmark fyrir Neista með þeim afleiðingum að þeir fóru ekki upp um deild.

Meira er það ekki að sinni.
Takk fyrir
-
-
Hilmar Ægir Þórðarson

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 20:46:05 / Ásdís og Örvar

Ó well....

 Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir það gamla!! 

 Við hjúin höfum það fínt, bæði í skóla og kósý heit! Ég (ásdís) er núna á fjórðu önn og sú önn er sú síðasta og það þýðir að mín útskrifast úr hárinu í júní og guð hvað ég hlakka til en er samt orðin soldið stressuð! 8) Örvar er byrjaður í HR - fjöltækniskóla íslands - og gengur bara vel þessi fyrsta vika og held ég bara að honum líki vel, hann er í góðum félagskap og svo náttla verða vísindaferðirnar nokkrar og er sú fyrsta í kvöld og eru því allir mjög hressir núna og komnir niður í bæ að drekka meira!! ;) Jólin og áramótin voru bara yndisleg. Maður náði að borða helling og ekki hefur maður mikla lyst af kjöti núna, fæ bara illt ef ég hugsa um reyktan mat! En jæja, við vorum á fásk um áramótin og það var bara mjög gaman, góður matur hjá stóru sys og hennar manni as always og svo var farið á hótelið að skemmta sér eftir miðnætti! Lögðum svo af stað í bæinn 2 janúar og ég byrjaði að vinna 3 jan sem var bara fínt. 

Ég fekk geggjaða gjöf frá örvari í jólagjöf. En það voru tveir flugmiðar með iceland express hvert sem er, það var bara geggjað og ég bjóst engan vegin við því!  :haha: Ég gaf honum bók um mótorhjól sem hann er ekkert smá mikið hrifin af og svo úlpu sem er geggjuð! Svo fengum við fullt af öðrum fallegum gjöfum og erum mjög ánægð með þær!

En jæja ég hef bara ekkert að segja, er hálf tóm í hausnum en ég er núna búin að segja ykkur það helsta svo ég læt þetta duga og vona að það lýði ekki langt í næsta blogg, nenni þessu nú voða sjaldan. En jæja hætti núna.

Verið þið blessuð og hafið það gott! kv Ásdís námsmær!


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 12:49:43 / Ásdís og Örvar

27 des

Gleðilega Jól.

Takk æðislega allir fyrir mig.

við fengum fullt af flottum gjöfum og við erum mjög ánægð!!

Hafið það sem allra best um áramótin

og vona ég að nýja árið renni fallega inn og allir verði ánægðir!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 20:12:58 / Ásdís og Örvar

19 des

Hún á afmæli í dag.

Hún á afmæli í dag.

Hún á afmæli hún Aldís.

Hún á afmæli í dag!!!!

Til hamingju með daginn litla systir!! Vona að þú hafir haft það gott í dag!!!

 

En annars er voða lítið að frétta af mér, er að fara heim á föstudaginn og ég get ekki beðið. Er eins og lítið smábarn mig hlakkar svo til..8)....Það er brjálað að gera í vinnunni og mig hlakkar ekkert smá til þegar þessi törn er búin, þetta er erfitt og þreytandi þegar það er svona mikið að gera og svo verða allir svo pirraðir!!! :S 

Allar jólagjafir eru búnar, það er búið að kaupa slatta af þeim! Þetta verða vondi skemmtileg gjafajól, allir verðir sáttir!! ;)

En já ég hef ekkert að segja. Ætla að fara slaka á, er að drepast í bakinu, ógeðslega vont og það er pirrandi að vera með vont í bakinu! En hafið það allavega gott og ég vona að þið eigið eftir að hafa það rosa gott um jólinn!!! ;)

p.s. munið að kvitta!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 23:14:50 / Ásdís og Örvar

10 des

Ég bara verð að henda inn einni stuttri færslu því að margir kvittuðu fyrir innlitið á síðustu færslu!!

En já það er komin 10 des og það styttist óðum í  21 des, en það er dagurinn sem ég fer HEIM!!!!! Vá hvað mig hlakkar til!  Jólagjafirnar eru að verða búnar, þetta er búið að vera mjög erfitt!!! :S Og svo plús það að versla fyrir aðra. Það er nú svoldið pain, en maður lætur sig hafa það! :|   Æ mig hlakkar bara til jólanna og vá hvað mig hlakkar til að gefa honum Örvari pakka!!! Er svo gaman að gefa honum gjafir!! :haha: Æ hann er svo mikil dúlla!!! ;)

En já hann er að fara austur í fyrramálið, ég að fara vinna, eftir vinnu er það ræktin og svo kanski meiri jólakaup. Æ það er samt eitthvað svo mikið eftir!! Þarf í Ikea og Ellingsen og Toys´r´us(sem ég nenni ekki í;)!!

En jæja læt þetta duga í bili! Farin að kúra undir sæng með minum manni ;).

Góða nótt elskurnar!!! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 21:00:51 / Ásdís og Örvar

30 nóv

Halló allir...hef voða lítið að segja! svo ég ætlaði bara að láta aðeins vita af mér! Það styttist bara óðum í jólin og guð hvað mig hlakkar mikið til!! Er soddan jólabarn. 8) Fer austur 21 des eftir vinnu og guð hvað mig hlakkar til!! ;) En já svo á morgun 1 des að þá er ég að fara vinna bæði á stofunni og á brodway eða í laugardalsstúkunni, en þar verður brúðkaupsveisla or som. En ætla samt að reyna klára jólagjafir og svoleiðis dót helst um helgina, fara í ikea og bara að dunda mér!

En ætla hætta þessu bulli því ég nenni ekki að bulla meira að finna eitthvað til að setja hér niður! Svo bless og hafið það gott á fyrsta í aðventu!!! ;)

 

P.S. svo á pabbi minn afmæli í dag. Hann varð 59 ára gamall hann pabbi minn!! Óska honum til hamingju með það! 8)

 

Vinsamlegast kvittið fyrir komuna!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 23:13:21 / Ásdís og Örvar

20 nóv

Á ég að reyna að koma einhverju hér niður?

Já sennilega! EN það helsta í fréttum er voða litið. Hún Bryndis litla var hér í bænum um síðustu helgi, var að keppa í stíl 2007 og bara vonandi flott hjá þeim, dúlluðumst aðeins með henni ágætt að fá gerpið í bæinn!! ;)

Já og svo fékk ég einhverja pest á föstudaginn. Var slöpp þegar ég vaknaði föstudagsmorguninn, mer var flökurt og eitthvað. Mætti í vinnuna var mikið ómöguleg þannig að ég fór heima um 11 hálf 12 og svo svona um 3 leytið að þá var min bara komin með 38,6 stiga hita! :( Ég lá bara undir sæng allan þann dag og ég gat ekkert borðað né drukkið. Ekki mikil matarlyst eða þá drykkjarlyst! ;) En á laugardaginn vaknaði ég með nokkrar kommur en um hádegi var ég orðin hitalaus en samt slöpp en ég harkaði það af mér og litaði hana Bryndísi svo núna er hún orðin fín um hárið! Fór á Pál Óskar á laugardagskvöldið :lol: Hefði nú kanski ekki átt að gera það en ég fór samt edrú og það var bara ógeðslega gaman. Allir í kringum mig fullir og VITLAUSIR!!! Fór heim kl 4 og þá var ég orðin slöpp og þá aðalega svong! Er ekki ennnþá komin með fulla matarlyst!

Vá hvað ég er mikið að blaðra um ekki neitt!! En þetta hlýtur þá að vera betra en ekki neitt! 8)

Já svo er min búin að vera í svoldlu átaki og ég búin að missa 4 kg sem er nokkuð gott að mínu mati og allar buxur orðna soldið víðar á mig!! :haha: Og ég er bara soldið ánægð með það! ;)

Örvar er að koma í bæinn á fimmtudagskvöldið, þvílik hamingja. Erum að fara svo á Jólahlaðborð með vhe á laugardaginn í Glersalnum sem er á salaveg í kópavogi. Vona að það verði flott og gott og bara betra en á Brodway!! 8) En hafið þið farið í Glersalinn að borða???? Endilega segið mér frá þvi!!!

En er hætt þessu bulli og farin að vaxa á mér fæturnar!!! :| Fu..... það á eftir að verða sárt!!! :S

En verið blessuð og hafið það gott þar til næst!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 35239
Klukkan